Ártún,
601 Akureyri
Símar:
463 3267
892 3591
www.artun.is
Senda fyrirspurn
|
|
Fjallganga Svæðið í kringum Ártún er einstaklega hentugt til gönguferða og fjallgöngu. - Fjallið Kaldbakur er 1167 m hátt.
Skemmtilegar gönguleiðir eru upp á Kaldbak, en fyrir þá sem kjósa léttari fjallgöngu er Þengilhöfði 260 m hátt fjall, suður af Grenivík, ákjósanlegri kostur.
Þá er afar vinsælt að ganga á Laufáshnjúk sem er 662 m hár. Nokkuð auðvelt er að ganga á hann en síðasti hlutinn er þó nokkuð brattur.
Á toppi hans er dýrðleg útsýn yfir Eyjafjörð.
|
|
|
|
· Gamli bærinn í Laufási, minjasafn(2 km.)
· Útgerðarmynjasafnið á Grenivík(8 km.)
· Á Grýtubakka(4 km.) er rekin hestaleigan Pólarhestar,
· Fjörðungar á Grenivík sérhæfa sig í gönguferðum um Fjörður og Látraströnd
· Kaldbaksferðir bjóða upp á snjótroðaraferðir á veturna, á Kaldbak.
· Veiði er í Fnjóská og Fjarðará í Hvalvatnsfirði
|
|
|
|
Margir fleiri skoðunarverðir staðir eru í sveitarfélaginu. En nefna má Laufás sérstaklega, fornfrægt höfuðból og kirkjustað sem er í göngufæri frá Ártúni. Þar er nú prestsetur og gamall torfbær(Gamli Bærinn) sem er minjasafn er í vörslu Þjóðminjavarðar. Opið ferðamönnum til skoðunar.
|
|
|